29. október 2007 klukkan 16:45
en jæja...... þá er ég komain heim til Dk og allt í góðu með mig...
ég er semsagt ný komin heim frá lanzarote og ítalíu.... það var geggjað á lanzarote og hitinn æðislegur og maður var að vörka tanið á fullu og svo stundiði maður sund hlaup og hjól á morgnanna.... sem var heví næs...
allvegna þá leið tímin og það var kominn að því að það var smá stranda party... ég var rétt byrjuð að fá mér í glas og var svona farin að fynna fyrir tánni, þá ætlar mín að pissa.... og skellir sér aðeins útfyrir og sér ekki skít þannig að hún tekur eitt óhappa skref til viðbótar og fellur niður 6 metra steinvegg.... og þetta eru afleiðingarnar....
eftir þetta gat ég ekki vörkað tanið því að ´sarin mín máttu ekki vera í sólinni þannig ð ég sat inni (nei lá) gat ekki setið, og lét mér leiðast... sem betur fer á ég þennan dásamlega kærasta og hann var hjá mér alla dagana....
jæja ég gat ekki verið í fötum eða neitt þannig að ég vafraði um nakin í herberginu mínu í 4 daga....
þegar átti að fara heim þá var komið að því að SITJA í 5 tíma.... þannig að ég var bara dópuð upp og látin sofa alla leiðina (NICE)
svo vorum við í eina nótt í köben hjá fríðu vinkonu og flugum svo daginn eftir til ítalíu (fleiri mega nice timar...) nema hvað að ég fékk engar pillur eða neitt þannig að ég þjáðist í 3 tíma.... svo var það bara 3 korter í bíl.... loxins komin til Napoli og það fyrsta með ég fann það var rúm, reif af mér fötin (ógeðslega óþæginlegt) og lá það sem eftir var af deginum......
mamma hans Asbjörns er hjúkka þannig að hún fékk að strúka á mér sárin og plástra þau.... eftir það byrjuðu þau að gróa rosalega vel...
en ég eins og ég er þá get ég ekki látið sárin vera... þannig að asbjörn er búin að vera í því að slá mig og lemja mig svo ég kroppi ekki í sárin....
en núna er rassin góður, get setið verið í fötum og GERT ALLT AFTUR
en já svo erum við komin heim, það var æðislegt í þessu fríið set inn myndir....
(þetta var alls ekki eins slæmt og orða þettta..... það var frábært....)
svo þegar við komum heim þá fór ég að keppa í handbolta og auðvitað þá var það ég sem fékk olnbogaskot í augað og þurfti að sauma 3 spor í brúnina.... mega nice en núna er ég góð held ég.... kvarta allavegna ekki mikið í augnablikinu....
ég var að spá hvort ég ætti að setja inn myndir en ???? þá er ég að sína öllum heiminum á mér rassinn....
og mér fynnst það ekki góð hugmynd,..... er það nokkuð HEKLA.........??????? en þið fáið tvær inn í myndaalbúmið...
já svo vorum við asbjörn að ákveða að flytja til íslands eftir áramót...... þannig að ég kem ekki heim fyrr en þá... ekki einusinni um jólinn...
tengdó voru svo nice að bjóða mér að vera hjá sér um jólin... og ég þáði það... þetta verða semsagt min fyrstu jól án fjölskyldunnar minnar....
en allvegna ég set inn myndir frá lanzarote og italíu bráðum þegar ég hef meiri tíma....
lovs... Ragga